» 2 hafa sagt sína skoðun
» 7 hafa sagt sína skoðun
Ég ætlaði að vera svakalega dugleg og gera svona ársannál en þá áttaði ég mig á því að þetta ár er ekkert búið að vera svakalega spennandi.... Slatti af tárum hafa dottið,og þá sérstaklega í byrjun árs, þegar afi dó og allt sem tengdist því, svo þegar Ranka dó... Lifi minning þeirra og ég þakka þeim báðum kærlega fyrir allt það sem ég fékk að upplifa með þeim. Alla góðu tímana og allt það skemmtilega sem tengdist þeim.
Svo var líka bara grátið eins og gengur og gerist. Svo var líka helgið mikið. Sumarið var samt ábyggilega eitt það skemmtilega sem að ég hef upplifað. Þakka Berglindi Pálmadóttur og Siggu Dís Guðnadóttur sérstaklega fyrir það. Annars var þetta allt magnað Maður kynntist nýju fólki og týndi öðru fólki sem að maður finnur vonandi seinna. Ég ákvað að svo að skipta um skóla. Ég hætti sem sagt í ML eftir þessa önn núna og bíð eftir að byrja í FÁ eftir áramót. Þetta ár er búið að vera ágætt en samt var það frekar merkisviðburðalítið. En þó að það hafi ekkert mikið gerst þá var þetta samt fínt ár og ekkert verra en hvað annað.
Takk allir sem að tóku þátt í þessu ári með mér.
Með þessu bloggi langar mig að óska öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs og takk fyrir allt það liðna og vonandi verður það sem á eftir að koma ennþá betra Takk fyrir mig í bili Ég er farin héðan með síðustu blogg færsluna mína á árinu...
Áramóta kveðjur....
» 8 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
» 1 hafa sagt sína skoðun
» 5 hafa sagt sína skoðun
Jæja... auðvitað er þetta alltaf eins hjá mér.... ég blogga svona 2 í mánuði í staðin fyrir 2 í viku jæja það væri nú töff ef að maður væri duglegur að blogga... þá kæmu kannski fleiri á þessa síðu *D REYMIR* en það þýðir ekkert að vera að væla eitthvað svona ef að maður gerir ekkert í því en annars er ég held ég ekkert að fara að vera duglegri að blogga því ég er svo sjaldan með tölvuna mína í tímum og það er eini tíminn sem ég kemst á netið eeeen yfir í annað.... Ég er orðin STUTT HÆRÐ.... ég semsagt fór í klippingu kl. 12 á Laugardaginn og lét klippa mig stutt... það kom svosem ágætlega út er bara enn að venjast því jájá svona er maður sérstakur ooog svo er hérna mynd af stutta hárinu
SNJÓÓÓÓR fokk já það er kominn sjór hérna á Laugarvatni....fullt fullt af snjó... mér langar á bretti en brettið mitt er í Reykjavík en ég get samt alveg farið á snjóþotu og í snjóstríð fokk mér langar í snjókast
* LIFI Í VONINNI AÐ VERÐA SVONA GÓÐ*
En um síðustu helgi þá fór ég í Reykjavíkina mútter sótti mig á föstudaginn og ég fór svo bara heim og hitti Bryndísi... við stöllur ákváðum svo að skella okkur í nýju Ikea búðina og jæaj við héldum að við yrðum margar aldir að komast í gegnum hana en svo var ekki, jú auðvitað villtumst við og svoleiðis, en við fundum ekkert sem að okkur gat mögulega langað í nema einn bleikann klósettbusta... en já svo þegar við vorum búnar að vera þarna í örlitla stund ákváðum við að fara í Keflavík og fá okkur að borða... við fórum þangað og fengum VERSTA Subway sem ég hef nokkurntíma smakkað... ógeð... og svo fórum við á rúntinn með Danna og Ingvari vini hans og svo heim til Danna að horfa á Biggest Loser og svo eftir það rúntuðum við pínu og fórum svo í Reykjavíkina. Kíktum til Lilju og þar voru Símon, Hlynur, Haraldur og Auðunn mjög kátir, fórum svo í partý til Erlu Sóleyjar en stoppuðum stutt, fórum niðrí bæ og svo á rúntinn og þannig lagað...
Á Laugardaginn fór ég svo í klippingu og svo í kringluna og þannig lagað og svooo bara ekkert þangað til að ég fór með Fanney frænku á eitthvað Halloween dæmi á einhverjum Bar sem var ágætlega gaman á fórum líka á rúntinn og þannig og svo hitti ég Kristó, Steindór og Sveinbjörn og þeir skutluðu mér heim
Svo á sunnudaginn fór ég bara snemma á Laugó og þannig
Svo núna um helgina er maður að vonast til að komast á Krókinn djööö væri það gaman 2 böll og þannig þá myndi maður skella sér með Kristó og kannski Steindóri og Sveinbirni....sjæsen Road Trip
En svo á morgun erum við í skólanum að fara í Hemma Gunn þáttinn... Í sjöunda himni yeah awesome það verður ábyggilega bara stemmari í því
En nóg af bloggi Adios amigos
Miðvikudagur?
...Kalt... alveg ískalt....Það ætti að banna þennann kulda! ...Þreyta.... má ég sofa lengur?
Já það er ískalt úti, samt er enginn snjór, ég held ég verði að segja sem betur fer útaf hendinni minni Skrambinn sjálfur... það er kominn snjór uppá Holtavörðuheiði og alveg allaleið á Laugar!Já Laugar þangað er ég einmitt að fara um helgina. ML-ingarnir eru að fara og heimsækja krakkana á Laugum. Íþrótta keppnir og fleira. Og þar er snjór. Já á föstudaginn fer ég allavega á Laugar, 7 tíma rútu ferð. Það verður lagt af stað eftir hádegið og við verðum komin á laugar svona um 9 leitið eða eitthvað, þá á víst að vera einhver kvöldvaka og svo á Laugardaginn eru íþróttakeppnirnar og það verður hægt að fara í sund og alles og svo á Laugardagskveldið verður önnur kvöldvaka og svo á sunnudaginn um hádegi eða eitthvað leggjum við af stað á Laugarvatn Þetta verður ábyggilega geðveikt stuð Annars var helgin geðveikt skemmtileg þakka Kristó, Sveinbirni, Steindóri og Bryndísi fyrir það jájá ég skemmti mér mjög vel. Þær lyktir sem einkenndu helgina voru spes, meðal annars fiskilykt og rakspýralykt en svo reyndist fiskilyktin vera þurrkuð bjórlykt hahaha já þetta var magnað Fórum á Hafravatn og í Keflavík og ég veit ekki hvað og hvað og ég skemmti mér mjög vel um helgina semsagt BÚHÚ! Cry me a river then Build a bridge and Get the Fuck over IT! kommbackið sem ég lærði um helgina og mér tókst að skemma BÚHÚ Gráttu mér á , byggðu svo brú og komdu þér yfir hana :') Æj ég varð að koma með þýðinguna líka fyrir þá sem eiga erfitt með að skilja ensku Jájájá annars hef ég ekkert annað að segja en óóómeeen mér langar á bretti en ég má það ekki strax biturleiki En já ég hef ekkert annað segja
-Erla Björk
Ég vil byrja á því í þessari blogg færslu að óska honum BINNA til hamingju með 17 ára afmælið á mánudaginn og svo vil ég óska honum til hamingju með BÍLPRÓFIÐ sem hann fékk á fimmtudaginn
En já annars langaði mig bara að láta vita að ég væri á lífi... er nú ekki að gera neitt sérstaklega mikið þessa stundina... pirruð yfir því að hafa ekki getað keppt í menntaskólamótinu í fótbolta útaf hendinni
hapes="_x0000_i1026">
Annars er þetta búið að vera mjög róleg helgi...Í gær þegar ég kom heim fór ég með mömmu og ömmu uppí kirkjugarð til Afa því hann hefði orðið 89 ára í gær ef að hann hefði lifað það Ótrúlegt hvað maður ætlar seint að komast yfir það að hann sé farinn. Það kemur ennþá fyrir að ég labba yfir til ömmu og er næstum búin að spyrja hvar Afi sé og oftar en ekki labba ég yfir og kíki hvort hann sér einhverstaðar þarna og þegar hurðin hérna heim opnast gáir maður oft hvort það sé hann að koma en þannig er það bara... þetta lagast með tímanum!! En þegar ég kom svo heim fór ég að stússast eitthvað með múttu og svo var bara kominn matur... svo sofnaði ég óvar um hálf 11 eða 11 í gær yfir sjónvarpinu og svaf bara þangað til í morgun
Afi minn og Ranka mín ;* Systkynin sem fóru bæði sama árið
Svo í dag vakanaði ég um hálf 11 og fór bara að horfa á Dvd og er ekki búin að gera neitt í dag nema eitthvað svona Svo veit ég ekkert hvað mér tekst að gera í kveld nenni ekki að hafa fyrir því að hringja í einhverja En já ég nenni ekki að vera að skrifa eitthvað svaka blogg hérna núna... þannig að ég held að ég hafi þetta bara gott í bili ég er farin að reyna að finna mér eitthvað að gera -Erla Björk
Jæja kannski að maður bloggi aðeins hérna Prófum þetta... ætli maður sé ekki búinn að prófa að blogga á flestum svona síðum en ef maður á að orða það þannig þá "finnur maður sig ekki" á nenni þeirra Kannski er það bara ekki í genunum að vera duglegur að blogga og svona... æj ég held allavega ekki. Þetta er ágætis afþreying en ekkert til að festa sig á og verða "hookt" á Ágætt ef að manni leiðist. Jæja kannski að maður segi aðeins frá hvað maður er búinn að vera að bauka... jújú eins og margir vita tókst mér að láta beinhimnuna í hendinni færast... jájá maður spyr sig hvernig....hérna er svona smá saga um það ;P Var semsagt í íþróttum á miðvikudaginn og ég var í marki í fótbolta. Og ég er án efa ein þjóskasta manneskja sem fyrir finnst þannig að ég var ekki á því að láta hitt liðið vinna eins og það var að gera þannig að maður fórnaði sér haha "take one for the team" en allavega þá var hitt liðið í sókn og Gummi Tomm var með boltann og eins og margir vita er gaurinn einn mesti keppnis maður ML eða eitthvað og gaurinn skítur heldur ekkert laust þannig að ég var semsagt að verja og set báðar hendurnar fyrir boltann en hann fer bara í aðra hendina.. s.s vinstri hendina. Og það beiglast of mikið uppá úlnliðinn. Svo er haldið að þetta sé brot og ég fer í rönken og alles en það er barasta ekki eins sprunga í beininu þannig að þá er mér sagt að beinhimnan hafi færst þúst wtf ég vissi ekki einu sinni að það gæti gerst. En það getur víst gerst og er víst oft verra en brot =/ þannig að ég sig hérna bara og er í gifsi jájá þetta tekst engum nema mér =/ One of a kind?? Annars var löng helgi... auðvitað skellti ég mér í reykjavíkina mína yndislegu Á föstudaginn kom ég bara heim og fór með mútter í kringluna að kaupa harðfisk því að um leið og ég var komin heim greip okkur svakaleg löngun í harðfisk þannig að við fórum bara og keyptum okkur harðfisk Jæja svo kom Tryggvi til mín eftir kvöld mat og hann var bara hjá mér til eitthvað rétt eftir 10 og þá fór ég barasta að connecta við fjölskylduna og skellti mér svo barasta í það að fara að sofa
Vaknaði svo kát á Laugardeginum um uh 2 eða 3 leitið og ég fór bara í sturtu og skemmtileg heit og fór svo á rúntinn með Fanney frænku alltaf jafn yndislega skemmtilegt það það telst varla vera helgi ef að maður hittir hana ekki Jæja svo kom ég heim og þá hringdi Tryggvi og spurði hvar ég væri og ég var heima og hann ætlaði að kíkja til mín en þá ákvað ég að fara til Kristós að skila einhverjum dvd myndum og á endanum fórum við á rúntinn... ég, Tryggvi, Kristó og Steindór og svo kom ég bara heim og fékk mér mat og svo var ég enn sjúskuð eftir sturtuna haha og þá hringdi Binni og rak á eftir mér að koma í bíó en þar sem að ég er auralaus þá buðu hann og Hjörtur mér í bíó ;* Fórum á Beerfest verð nú að segja að hún var ekki jafn góð og ég hafði búist við en hún var ágæt Svo fór ég bara heim og Tryggvi rölti bara heim með mér og við vorum að lónerast þangað til að Sverrir kom og sótti hann um miðnætti eða eitthvað og þá fór ég að sofa því ég var gjörsamlega að farast úr þreytu
Ooog svo í dag þá vaknaði ég um eitthvað og man ekki hvað og var eitthvað að reyna að lesa The color purple sem að ég þarf að lesa fyrir skólann en ég var einhvernvegin ekki að meika það þannig að einhvernvegin tókst mér að gera eiginlega ekkert þangað til um 8 leitið þegar ég, mútter, pabbi og Njáll fórum til Helgu systur pabba og þar var ég bara að spjalla við Jóhann frænda og var svo bara að koma heim og núna er ég orðin slatta þreitt þannig að það eru pælingar um svefn eða eitthvað ef að maður nennir að standa upp úr tölvunni
Annars held ég að þetta sé orðið nóg í bili
Ég þakka góða þolinmæði ef að einhver nennti að lesa þennann anda fjanda
Bestu þakkir og vonir um að þú lítir aftur við á næstunni
En ef að ég á að sleppa öllum formleg heitum þá ætla ég að enda þetta
-Erla Björk kveður
Sæl veriði... já ég er á lífi ótrúlegt en satt.... Ætli maður segi ekki bara svona örlítið frá því sem er búið að gerast... ML ballið var... áhugavert... say no more annars fínt sumir að missa sig aðeins Svo á Laugardeginum eftir ballið þá var ég bara á Laugó og var á Laugó bara alla helgina... Gerði ósköp fátt sko... Svaf... svaf... svaf... fraus næstum úr kulda... svaf... Veiga kom í heimsókn haha langt síðan það hefur gerst endilega endurtaka þetta oftar Svo fór ég snemma að sofa á Laugardeginum og á Sunnudeginum tóku ég og Berglind til í öllu húsinu duglegar og svo um kveldið komu Sammi, Sævi og GuðrúnK til okkar í Pitsu og vídjó Svo er barasta ekkert búið að gerast lítið spennandi líf hérna Fór samt á Selfoss á mánudaginn með henni Siggu Dís... rúntur í Pitsu og aftur á laugó... Halló Sigga mín við hefðum nú alveg getað gert eitthvað meira þarna En jámm svo um helgina sem er að koma löng helgi Fsu ball á föstudaginn... paparnir að spila... reikna ekki með að fara útaf því að ég á ekki krónu jájá fátækur námsmaður hér á ferð... en ég tek á móti styrkjum... hafið bara samband og ég gef ykkur reikningsnúmerið mitt hahaha en um helgina fer ég bara í Reykjavíkina mína kæru Ég finn mér eitthvað að gera þar Tryggvi er tildæmis að fara í rvk ætli maður hitti hann ekki og geri eitthvað sniðugt Annars hef ég ekkert að segja Miklar pælingar í að annað hvort fara að gera eitthvað sniðugt á þessari síðu eða bara hætta með hana Það kemur bara í ljós hvað maður gerir... kíkir hvort eð er enginn hérna haha maður er bara að blogga fyrir sjálfann sig
Annars er ég búin að komast að því að ég hata blog.central kerfið... helvítis rugl... ég er hérna búin að sitja í mestu makindum mínum að blogga og ætlaði svo svona að ganni mínu að skrifa í skoðanir að blogg síðu en það endaði ekki betur en þannig að ég gafst upp á að skrifa skoðunina og fór útaf síðunni í svaka pirrings kasti eftir að ég hafði reynt að tjá mig þarna í yfir 18 skipti... Hvað er málið með þetta helvítis rugl... jájá fínt að hafa staðfestingarkóða og allt það en hvernig væri þá að hafa þá þannig að þetta endi ekki allt í einni allsherjar klessu Helvítis vesen það!! eeeen ég held þetta sé barasta nóg í bili -Erla Björk
» 3 hafa sagt sína skoðun
Best að blogga örlítið þó ekki væri nema nokkrar línur... Allavega síðan ég bloggaði síðast almennilega hefur ábyggilega eitthvað gerst sem að maður man ekki Allavega um helgina fór ég í réttir norður í Hrútafirði Fór bara með hele familien ágætt að hafa það þannig stundum. En svona til að byrja aðeins á byrjuninni ætla ég bara að byrja að segja frá miðvikudeginum.... á miðvikudaginn var...skóli haha afar spennandi svo um kveldið var "Magna vaka" ennþá meira spennandi hahaha allir að farast úr myglu niðrí N-stofu... Svo kom Sigga Dís og gisti hjá okkur Berglindi! Samt ekki mikill svefn þá nóttina. Ég gafst upp og fór að sofa milli 4 og hálf 5 en þær sofnuðu eitthvað seinna Svo á fimmtudeginum var maður að drepast úr þreytu í skólanum en það reddaðist allt þegar við fréttum að þreföld sálfærði félli niður *SCORE* hehe semsagt búin í skólanum 14:30 en ekki 16:55 ágætt það... svo kom mútter hingað á laugó og sótti mig og Harald og við fórum í Reykjavíkina í síðasta Ö2 tímann okkar svo eftir það fór ég bara heim og var alveg búin á því af þreytu þannig að ég fór bara að sofa um 12 eða eitthvað en svo á föstudaginn vaknaði ég ekki fyrr en kl. 3 ætlaði að vakna um 10 fara að pakka niður og taka til og þannig... semsagt ætlaði að vera dugleg... en ég var alveg stein rotuð uppí rúmi Svo fór ég eitthvað í örfáar búðir með mútter að kaupa stuttbuxur og eitthvað þannig dótarí svo bara heim að klára að pakka áður en við fórum norður. Svo þegar alles var tilbúið þá barasta lögðum við af stað í Hrútafjörðinn... við lögðum af stað um 7 eða hálf 8 og vorum komin um hálf 10 eða 10 norður... ágætt svosem... þá var bara endalaust kjaftað og svo bara horft á sjónvarpið og svefn um miðnætti eða eitthvað haha vá ég svo sko ekki vel svaf á einhverjum 2 þunnum dínum sem voru alltaf að renna í sundur ekki að meika það en það skiptir ekki... Á Laugardaginn ... réttadaginn fóru ég, Dóra og Pabbi á hestum í réttirnar... ágætt það bara ÓGEÐSLEGA KALT!!!! En jæja það reddaðist svo að mestu leiti... fyrir utan það að ég fann ekki fyrir puttunum á mér né tánum á mér þegar við vorum að fara til baka eftir réttirnar þannig að ég gat ekki farið á hesti svo var bara matur hjá Rósu frænku allir þar endalaust gaman og ég var svoldið þreytt þannig að ég bara fór að sofa um miðnætti aftur Svo var bara heimferð í Reykjavík um 2 leitið og vorum svo komin í rvk um 4 eða eitthvað Svo í gær þá bara var ég bara heima að gera ekkert þangað til að ég fór á laugó aftur
Vegna þess hve litlu máli hitt bloggið skiptir er það í litlu letri Svo núna í dag ... þá bara sit ég hérna við tölvuna og er ekki að gera neitt en já fer svo í útivistartíma á eftir og svo fótboltaæfing kl. 7 of töff haha Allavega þá hef ég ekkert meira að segja 10 dagar í afmælið mitt og svo helgina eftir það er stefnan tekin á smá svona reunion hjá mér Alex, Arnari, Örvari og Gumma awesome
Annars er mann nú farið að langa að hitta alla aftur... Bryndís hvar ertu?? Maríanna? Helga? Finnur? Arnar? Gummi? Örvar? Kristó? Kata? Allavega... nóg af bloggi...
En þangað til næst.... -Erla Björk
Lífið... ?! Margbreytilegt og misjafnt -Skemmtilegt -Leiðilegt -Auðvelt -Erfitt -Gleði -Sorg -Hamingja -Óhamingja Lífið er svo ótal ótal margir hlutir. Þeir sem að okkur finnst bestir finnst okkur oft vera stiðst en þeir vondu viðrðast aldrei ætla að enda. Þannig er bara lífið. Hvort sem að við viljum það eða ekki. Sumir þurfa aldrei að upplifa mikinn missi eða allavega þá ekki fyrr en seint á ævinni en aðrir eru alltaf að missa einhverja sem skiptir þá máli. Hjá sumum er líka lífið dans á rósum en hjá öðrum erfiðara. Maður veltir því þá fyrir sér hvort að það sé ekki betra að ýmisu leiti að það sé erfitt því þá þolir maður meira. En annars er það misjafnt hvað fólk hugsar. Lífið er samt eitthvað sem við ráðum engann veginn við. Sumir eru alltaf að væla og eru óánægðir með allt en aðrir sjá það góða við allt. Sjálf viðurkenni ég alveg að ég væli alveg og er óánægð en auðvitað þarf maður að læra að meta það sem maður fær og þakka fyrir það sem maður hefur á meðan maður hefur það og þakka svo fyrir að hafa fengið það seinna. Ekkert er verra en eftir sjá. Maður á ekki að eyða lífinu í leiðindi.
En annars voru þetta bara örlítið djúpar pælingar sem að ég bara varð að koma frá mér.. Takk fyrir mig -Erla Björk..
» 6 hafa sagt sína skoðun